
Um aldir hefur dáleiðsla ögrað skilningi manna og þótt að við skiljum ekki fullkomnlega af hverju hún virkar þá gerir hún það samt og hafa rannsóknir sýnt að dáleiðsla er öflugt tæki til að ná fram breytingum á hugsunum, hegðun og tilfinningum.
Hvað er dáleiðsla?
Dáleiðsla er djúpt slökunarástand þar sem undirmeðvitundin verður opnari fyrir jákvæðum breytingum. Á meðan meðferð stendur leiðir dáleiðslusérfræðingur einstaklinginn í ástand þar sem hugurinn verður rólegri og skýrari og fær um að vinna með rætur vandamála frekar en einungis einkenni þeirra eins og gert er í samtalsmeðferðum. Í þessu slökunarástandi er mögulegt að breyta gömlum mynstrum, ómeðvituðum venjum og tilfinningum sem geta staðið í vegi fyrir vellíðan. Það sem margir vita ekki er að dáleiðsluástand er náttúrlegt ástand sem hugurinn fer í oft á dag t.d. þegar okkur dagdreymir.
Af hverju velja dáleiðslumeðferð?
1. Náttúruleg og lyfjalaus leið til bata
Dáleiðsla er 100% náttúruleg meðferð sem krefst engra lyfja eða að taka eitthvað inn. Hún er því góð valkostur fyrir þá sem vilja virkja heilunarmátt hugans og upplifa á eigin skinni hvað hugurinn er magnaður.
2. Vísindalega studd meðferð
Rannsóknir hafa sýnt að dáleiðsla getur haft jákvæð áhrif á margvísleg vandamál, þar á meðal svefntruflanir, kvíða og króníska verki. Meðferðin er viðurkennd af mörgum heilbrigðisstofnunum sem árangursrík viðbót við hefðbundnar meðferðir eða ein og sér, en enn eru því miður margar mýtur í gangi um dáleiðsluna.
3. Persónuleg nálgun
Dáleiðslumeðferð er einstaklingsmiðuð og byggist á því að mæta hverjum og einum þar sem hann er staddur. Þetta þýðir að meðferðin tekur mið af persónulegum þörfum, markmiðum og áskorunum.
Dáleiðsla á Íslandi
Sem betur fer er alltaf að aukast að fleiri Íslendingar notist við dáleiðslumeðferðir til að vinna í sér og sínum vandamálum. Á síðustu árum hafa dáleiðendur fundið mikinn meðbyr í samfélaginu þar sem fleiri og fleiri fá lausn sinna mála með dáleiðslumeðferð.
Er dáleiðsla fyrir alla?
Dáleiðsla hentar langflestum og getur verið gagnleg bæði fyrir fullorðna og börn. Börn og ungmenni eru oftast mjög móttækileg fyrir dáleiðslu og ótrúlegt hvað hún hefur jákvæð áhrif fljótt á þau.
Dáleiðslumeðferð og Hugræn Endurforritun
Til eru margar dáleiðslu aðferðir og meðferðir en Hugræn Endurforritun er ein af öflugari meðferðum sem til eru. Þar tengjumst við okkar Innri Styrk í meðferðinni sem hjálpar okkur að vinna í tímanum og tekur á svo mörgu í einu til að endurforrita gömul úrelt gildi og forrit.
Hvernig virkar hugræn endurforritun?
Hægt er að hugsa um hugann sem tvenns konar einingu – sjálfið annars vegar og Innri Styrkinn hins vegar, sem margir þekkja sem Kjarna, Innsæi eða jafnvel Sál. Í meðferðinni beinum við samtalinu að þessum Innri Styrk til að vinna að lausnum og umbreytingum.
Í upphafi meðferðar leitumst við við að tengjast Innri Styrknum okkar – þeirri innri auðlind sem veitir okkur kraft til að vinna með vandamálið sem komið er til að vinna með. Þetta kann að hljóma óvenjulegt, en dáleiðsluþegum finnst þetta mjög eðlilegt, enda er þessi styrkur órjúfanlegur hluti af okkur sjálfum.
Í lok meðferðar er lögð áhersla á að styrkja tengslin við Innri Styrkinn svo meðferðarþeginn geti alltaf kallað hann fram þegar hann þarf á honum að halda. Þessi aðferð er sérsniðin að þörfum og markmiðum dáleiðsluþegans, sem gerir hana einstaklega áhrifaríka.
Ef þú hefur áhuga á að bæta andlega líðan þína, losa þig við hindranir eða ná fram meiri vellíðan í daglegu lífi, gæti hugræn endurforritun verið frábær lausn. Þetta er einföld, örugg og áhrifarík leið til að ná varanlegum breytingum í lífi þínu.
Til að bóka tíma sendu mér email á jenny@fadmur.is eða hringdu í síma 6973991. Að taka fyrsta skrefið getur verið byrjunin á dýrmætum breytingum.
