Dáleiðsluslökun

Viltu slaka á á meðan að undirvitundin vinnur að markmiði þínu? Dáleiðsluslökun er leidd djúpslökun sem felur í sér að dáleiðandinn slakar hópinn niður í notarlega slökun, svipað og í Yoga Nidra. Í þessu slökunarástandi er hægt að vinna með undirvitundina og gera þar dásamlegar breytingar, eins og að losa um kvíða, stress og streitu og auka hamingju – allt eftir því hvert markmið slökunarinnar er.

Hver dáleiðsla hefur sitt markmið, t.d. að bæta svefn, auka sjálfstraust og hamingju, minnka stress og streitu, svo fátt eitt sé nefnt.

Næsta Dáleiðsluslökun

Jenný hjá Faðmi heldur reglulega Pop-up dáleiðslukvöld með Yogahúsinu til að styrkja hin ýmsu málefni og góðgerðarsamtök. Með seinustu slökun styrktum við Bleiku Slaufuna um 39.000 krónur. Núna munum við styrkja Björgunarsveit Hafnarfjarðar. Næsta dáleiðsluslökun verður þriðjudaginn 10. des kl 19:30 og stendur í cirka 45 mínútur. Verð: 3000kr á mann. Þema dáleiðslunnar að þessu sinni: Staldra við í hraða þessa árstíma og losa um spennu og streitu í líkamanum Ef þú hefur áhuga á að auka hugarró, minnka streitu og losa um spennu skráðu þig á jenny@fadmur.is með kennitölu. Þegar skráning er staðfest færðu sendan rkn á heimabankann fyrir tímanum. ATH allur ágóðinn mun renna óskert til að styrkja Björgunarsveit Hafnarfjarðar!

Hugurinn okkar

Hugurinn skiptist í meðvitund og undirvitund. Við erum meðvituð um aðeins 5% af því sem gerist í huganum okkar, en restin er í undirvitundinni. Þess vegna er oft erfitt að gera breytingar, þrátt fyrir að við séum búin að ákveða eitthvað í meðvitundinni. Dáleiðsla er vitundarástand þar sem heilinn starfar á hægari tíðni en í dagvitund og er einbeittari.

Í dáleiðslu er dáleiðsluþeginn leiddur í djúpa góða slökun þar sem undirvitundin er opin og auðvelt er að vinna með henni til að gera jákvæðar breytingar. Við förum oft í þetta ástand minnst 2x á dag, rétt áður en við sofnum eða rétt eftir að við vöknum. Einnig eru dagdraumar svipað sefjunarástand, svipað dáleiðslu.

Algengur misskilningur um dáleiðslu er að dáleiðsluþeginn verði í raun viljalaust verkfæri í höndum dáleiðandans. Þetta er ekki raunin; í dáleiðslu erum við aðeins í djúpri slökun en getum gerst allt það sem við viljum og hugsað það sem við viljum. Dáleiðsluþeginn er við stjórnvölin og dáleiðandinn aðeins millistykki sem hjálpar undirvitund dáleiðsluþegans við að bæta hans vandamál.

Hugræn Endurforritun

Hugræn endurforritun er dásamleg dáleiðslumeðferð til að hjálpa einstaklingum að vinna úr sálrænum vanda sem og líkamlegum vanda af sálrænum toga. Í þessari meðferð er meðferðarþeginn leiddur í góða djúpa slökun til að komast að undirvitundinni til að gera þar jákvæðar breytingar. Þessi meðferð er ótrúlega góð til að losa út kvíða, ofsakvíða, fóbíur, króníska verki, einkenni kulnunar, mígreni, þunglyndi, ofnæmi, svefnvandamál, sjálfstraust, vefjagift, áföll, nikotín fíkn, fíkn í mat og áfengi og margt fleira. Það góða við þessa meðferð er að það þarf ekki að endurupplifa áföllin, heldur er hægt að vinna í rótinni án þess. Einnig þarf dáleiðsluþeginn ekki að segja dáleiðaranum neitt frekar en hann vill, vinnan er öll í huga dáleiðsluþegans hvort sem er. Lesa meira hér!

Sjálfsdáleiðlsu-Upptökur

Hér er hægt að fá aðgang að slökunarupptökum sem eru í raun sjálfsdáleiðslu slakanir og gott er að hlusta á. Hver og ein vinnur á hinum ýmsu atriðum sem gott er að vinna í daglegu lífi. Einnig býr Jenný til persónulegar sjálfsdáleiðslur fyrir einstaklinga. Skoða dáleiðsluslökunar upptökur hér…

Lífsbætandi Möntrur

Lestu eina möntru á dag og leyfðu þér að hugleiða hana eða notaðu bunkann sem nokkra mínútna hugleiðslu. Þessar möntrur hjálpa okkur að skilja að við sköpum okkar lífshamingju með hugsunum okkar. Skoða hér…

Hvar er tíminn

Dáleiðsluslökunin fer fram á 4. hæð í Lífsgæðasetrinu Suðurgötu í Hafnarfirði. Þegar gengið er upp stigann, er farið til hægri út í enda. Þar er bæði rými Yogahússins þar sem dýnur og props eru geymd, ásamt jógasalnum sem er beint á móti. Það er hægt að taka lyftu upp á 4. hæð, en hún er í hinum enda húsins (athugið að önnur lyfta rétt hjá inngangi á 2. hæð fer aðeins upp á 3. hæð, ekki taka hana). Dáleiðsluþeginn getur fengið lánaða dýnu, púða og teppi og þarf ekki að taka neitt með, frekar en maður vill.