Dáleiðsla og vísindin: Hvers vegna virkar hún svona vel?
Í sífellt hraðari heimi leitum við að leiðum til að draga úr streitu, bæta svefn og finna innri frið. Dáleiðsla eða dáleiðslumeðferð hefur vakið athygli bæði almennings og vísindasamfélagsins fyrir öfluga möguleika sína í þessum efnum í gegnum árin. En virkar hún í alvöru? Já ! Og vísindin styðja það!
Hvað er dáleiðsla og hvernig virkar hún?
Dáleiðsla er eðlilegt hugarástand þar sem djúp slökun og einbeiting fara saman, og hugurinn verður opinn og móttækilegri fyrir jákvæðum áhrifum og breytingum. Dáleiðsla er leið til að komast í tengsl við undirvitundina, sem stýrir hugsunum, tilfinningum og hegðun.
1. Heilinn fer í annað bylgjusvið
Þegar einstaklingur fer í dáleiðslu breytist virkni heilans á mælanlegan hátt, án þess að viðkomandi sofi eða missi meðvitund. Um er að ræða ástand djúprar einbeitingar og aukinnar innri meðvitundar, þar sem fókusinn færist frá ytri áhrifum yfir á eigin upplifun, tilfinningar og innri styrk. Í stað þess að vera í „venjulegu vökuástandi“ (beta-bylgjur), fer heilinn yfir í alfa eða jafnvel þeta-bylgjur. Þetta eru sömu heilabylgjur og við förum í rétt áður en við sofnum eða þegar við hugleiðum djúpt. Þetta veldur:
- Aukinni ró og einbeitingu
- Skynjun verður inn á við frekar en út á við
- Við verðum opnari fyrir nýjum hugmyndum eða breytingum
2. Sjálfsgagnrýni minnkar
Partur heilans sem stýrir „innri gagnrýnisröddinni“ (default mode network) dregur úr virkni. Þetta gerir einstaklingnum kleift að:
- Trúa betur á jákvæð skilaboð
- Auðvelda aðgang að minningum sem valda tilfinningum eins og kvíða, reiði og sorg og fleira.
- Þiggja ný hugsanamynstur sem stuðla að betri líðan
3. Undirvitundin opnast
Þetta er stór hluti af dáleiðslu. Í dáleiðslu ástandi fer meðvitundin „til hliðar“ og undirvitundin verður móttækilegri. Þetta þýðir að:
- Við getum unnið með rætur vana, ótta og sjálfstrú
- Við getum gefið sjálfum okkur jákvæð skilaboð sem „festa sig“
- Djúp tenging við tilfinningar og minningar getur átt sér stað
4. Líkamsviðbrögð: ró og slökun
- Öndun verður dýpri og jafnari
- Hjartsláttur hægist
- Vöðvaspenna minnkar
- Streituhormón eins og kortisól minnkar
Hvað segja rannsóknirnar?
Vísindin eru með okkur og hér eru nokkrar af þeim fjöldamörgum rannsóknum sem styðja virkni dáleiðslu:
Dáleiðsla og verkjastjórnun
Rannsókn eftir Montgomery o.fl. (2000) greinir 18 rannsóknir þar sem dáleiðsla var notuð við verkjum. Niðurstöður sýna meðal til mikinn árangur í verkjaminnkun.
🔗 Sjá rannsóknina hér
Dáleiðsla og svefn
Jensen o.fl. (2017) sýna að dáleiðsla getur aukið „slow-wave sleep“ (djúpan svefn), sem er lykilatriði í endurnærandi svefni.
🔗 Sjá rannsóknina hér
Dáleiðsla fyrir börn með kviðverki og kvíða
Í rannsókn Anbar & Geisler (2005) fengu börn með óútskýrða kviðverki markverðan bata eftir að hafa lært sjálfsdáleiðslu.
🔗 Sjá rannsóknina hér
Dáleiðsla sem viðbót við hugræna atferlismeðferð (HAM)
Schoenberger (2000) sýndi að dáleiðsla bætir árangur HAM við kvíða og þunglyndi.
🔗 Sjá rannsóknina hér
Börn og unglingar eru sérstaklega móttækileg
Það sem einkennir dáleiðslu fyrir börn og unglinga er hversu móttækileg og skapandi þau eru. Undirmeðvitund þeirra er ekki eins bundin gömlum mynstrum og hjá fullorðnum og því auðveldari leið til jákvæðra breytinga. Þetta felur í sér að:
- Þau svara fljótt dáleiðslu
- Dáleiðsla getur hjálpað við svefn, ótta, prófkvíða og sjálfsmynd
- Hún styrkir hugræna seiglu og sjálfstraust
Algengar spurningar um dáleiðslu
Er ég meðvituð/meðan á dáleiðslu stendur?
Já, þú ert alltaf meðvituð. Dáleiðsla er eins og að vera í hugleiðslu – en með leiðsögn.
Er dáleiðsla hættuleg?
Nei, dáleiðsla er örugg og náttúruleg aðferð sem við förum í oft á dag óafvitandi og er í ætt við aðferðir sem notaðar eru í slökun, hugleiðslu og yoga nidra.
Er hægt að læra sjálfsdáleiðslu?
Já, og það er mjög öflugt tól til að takast á við streitu, kvíða og slæmar venjur.
Aðferðin í dáleiðslu er aðlöguð að aldri og þroska hvers einstaklings. Eldri unglingar og fullorðnir fara í svokallaða Hugræna endurforritun, þar sem unnið er meðvitað að því að virkja og nýta innri styrk til að breyta hugsunar- og hegðunarmynstrum og losa út vandamálið. Hjá börnum og yngri einstaklingum er beitt öðrum dáleiðslu nálgunum sem hentar þeirra aldri.
